 |
Og ég skal hreyfa jörðina
Forngrísku stærðfræðingarnir og áhrif þeirra
Jón Þorvarðarson
Hvernig stendur á því að Pýþagóringar höfðu óbeit á tölunni 17?
Hvernig tókst Arkímedesi að stela sólinni?
Fyrir hvaða sakir var Anaxagóras settur í tukthús?
Hvernig tókst Eratosþenesi að reikna stærð jarðarinnar?
Þessum spurningum ásamt fjölmörgum öðrum svarar höfundur í ítarlegasta og vandaðasta verki sem til þessa hefur verið ritað á íslensku um sögu forngrískrar stærðfræði - sögu sem í mörgum tilvikum teygir sig til nútímans. Bókin er ríkulega myndskreytt og prentuð í lit.
Þau andlegu þrekvirki sem unnin voru í fornöld hafa ávallt vakið undrun jafnt sem aðdáun, en saga hinna djúpvitru hugsuða sem þá lifðu er ekki síður athygliverð. Þeir ruddu mörgum steini úr götu vísindanna, léku með þvílíkri snilli á flesta strengi stærðfræðinnar að furðu sætir. Saga þessara manna er svo áhrifamikil að hún má ekki gleymast.
|