2009
2008
2007
2006
2005
2004
2003
2002
2001
2000
1997
1996

Bókatíðindi 2005
Þýdd skáldverk
 
 

Fimmta konan
Henning Mankell
Þýð.: Vigfús Geirdal

Stjörnubjarta nótt fer hæglátur gamall maður út til að fylgjast með brottför farfuglanna frá Skáni. Þegar Kurt Wallander lögregluforingi kemur á vettvang hangir gamli maðurinn stjaksettur til dauðs á oddhvössum bambusstöngum. Skömmu seinna hverfur blómasali sporlaust og finnst líka líflátinn úti í skógi. Kurt Wallander og félögum hans í lögreglunni í Ystad verður fljótlega ljóst að morðin tengjast og snúast um hefndir. En aldrei fyrr hefur Wallander átt í höggi við svo útsmoginn og kaldrifjaðan morðingja . . .
   Henning Mankell er einn vinsælasti rithöfundur heims um þessar mundir.

 

Blaðsíður Útgefandi ISBN númer Leiðb. verð
570 bls. Forlagið - Mál og menning 9979-3-2617-4 1.799 kr.