2009
2008
2007
2006
2005
2004
2003
2002
2001
2000
1997
1996

Bókatíðindi 2006
Íslensk skáldverk
 
 

Skipið
Stefán Máni

Óveðursský hrannast upp og eldingar rista himininn þegar fraktskipið Per se leggur úr höfn á Grundartanga og tekur stefnuna á Suður-Ameríku. Níu skipverjar eru um borð, flestir með eitthvað misjafnt í farteskinu. Nokkrir mannanna hafa heyrt að segja eigi upp áhöfninni og hyggjast því grípa til sinna ráða um leið og storminn lægir. Andrúmsloftið í skipinu er þrungið tortryggni, ógn og fjandskap og þegar sambandið við umheiminn rofnar er eins og ill öfl taki völdin. Skipið, sem er sjöunda skáldsaga Stefáns Mána, er hörkuspennandi tryllir og svo magnaður að lesanda rennur kalt vatn milli skinns og hörunds.

 

Blaðsíður Útgefandi ISBN númer Leiðb. verð
432 bls. Forlagið - JPV útgáfa 9979-791-97-7 4.480 kr.