 |
Viltu vinna milljarð?
Vikas Swarup
Þýð.: Helga Þórarinsdóttir
Indverjinn Ram Mohammad Thomas hefur verið fangelsaður fyrir að svara tólf spurningum rétt í spurningaþættinum Viltu vinna milljarð? Talið er víst að hann hafi svindlað. Ungur kvenlögfræðingur birtist óvænt í fangelsinu og tekur mál Rams að sér en Ram segir henni sögu sína. Úr þessu verður óvenju litrík frásögn þar sem lesendanum er veitt heillandi en jafnframt ógnvekjandi sýn inn í framandi heim. Sögupersónan Ram hefur heillað lesendur um allan heim með einlægni sinni, æðruleysi og sjálfsbjargarviðleitni sem skín í gegn í þessari einstöku og kraftmiklu sögu.
|