Bókatíðindi 2007
Fræði og bækur almenns efnis

2012
2011
2010
2009
2008
2007
2006
2005
2004
2003
2002
2001
2000

 
 

Fjölmenning á Íslandi
Ritstj.: Hanna Ragnarsdóttir
Ritstj.: Elsa Sígríður Jónsdóttir
Ritstj.: Magnús Þorkell Bernharðsson

Efni bókarinnar er gagnrýnin umræða um stöðu mála í fjölmenningarsamfélaginu á Íslandi. Kaflarnir eru tengdir nýlegum rannsóknum í viðkomandi fræðum, bæði á Íslandi og í öðrum löndum. Bókin er ætluð kennaranemum, öðrum háskólanemum, háskólakennurum og fræðimönnum, svo og starfandi kennurum á öllum skólastigum og stefnumótandi aðilum.
   Helstu efnisþættir bókarinnar eru þróun fjölmenningarlegs samfélags og skólasamfélags á Íslandi, straumar og stefnur í fjölmenningarfræðum, tvítyngi og móðurmál, íslenska sem annað mál, staðalmyndir og fordómar, sjálfsmynd, menning og trúarbrögð, menningarlæsi og íslenskar rannsóknir, m.a. á stöðu og reynslu barna og fullorðinna í fjölmenningarsamfélaginu. Enn fremur eru í bókinni svonefndir gluggar um líf innflytjenda á Íslandi, svo og valin ljóð er tengjast viðfangsefninu.

 

Blaðsíður Útgefandi ISBN númer Leiðb. verð
320 bls. Háskólaútgáfan 978-9979-54-769-3 3.900 kr.