Skráningar úr bókatíðindum 2020

 

Flokkur Titill Höfundur Útgáfa
Barnabækur - Skáldverk Grísafjörður Lóa H. Hjálmtýsdóttir Salka

LÝSING:
Tvíburarnir Inga og Baldur eru komnir í sumarfrí. Á dagskránni er að drekka kókómalt, glápa á teiknimyndir og slappa af með tilþrifum. Fyrirætlanir þeirra virðast ætla að fjúka út í veður og vind þegar Albert, nágranni þeirra af efstu hæðinni, birtist óvænt í heimsókn hjá þeim. Honum er augljóslega mikið niðri fyrir.
Í þessari bráðskemmtilegu, fyndnu og fjörugu bók, sem segir frá ólíklegri vináttu, liggur leiðin allt frá blokkaríbúð í Reykjavík til Ísafjarðar, Alpanna, Guatemala, Glimmerfjalla og síðast en ekki síst – til Grísafjarðar!


SMELLIÐ Á BACK eða HÉR TIL AÐ KOMAST AFTUR Á LISTASÍÐU