LÝSING:
Hvað gerir pínulítill maur sem er aleinn og týndur uppi í fjöllum þegar byrjar að snjóa? Og hvað gerir hvítur björn sem ætlar að sofa heilan vetur en er vakinn aftur og aftur? Þessi fallega bók miðlar mikilvægum gildum á borð við vináttu, að hjálpast að og veita aðstoð. Sagan ýtir einnig undir mál- og líkamsvitund barna í gegnum skemmtilega frásögn. |