LÝSING:
Á aðfangadag árið 1617 skellur aftakaveður á Vardø, austustu byggð Norður-Noregs, þegar allir karlmenn þorpsins eru á sjó. Konurnar horfa á eiginmenn, unnusta, feður, bræður og syni farast. Þær eru einar eftir og þurfa að bjarga sér. Rúmu ári síðar kemur nýr fógeti ásamt konu sinni til að sveigja íbúana undir veraldlegt og andlegt yfirvald. Sjálfstæðu konurnar á eyjunni horfast þá í augu við breytta tíma. |