Skráningar úr bókatíðindum 2020

 

Flokkur Titill Höfundur Útgáfa
Skáldverk / Íslensk Dauði skógar Jónas Reynir Gunnarsson Forlagið - JPV útgáfa

LÝSING:
Það hefur rignt linnulaust í marga daga þegar skógurinn rennur niður hlíðina og setur allt af stað í lífi landeigandans og fjölskylduföðurins Magnúsar. Litlu seinna koma sprengjurnar í ljós. Launfyndin og margræð saga um það þegar hversdagurinn fer á hvolf og dauðinn ber að dyrum. Jónas Reynir hefur vakið mikla athygli fyrir skáldsögur sínar og ljóð og hlotið bæði Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar og Maístjörnuna.


SMELLIÐ Á BACK eða HÉR TIL AÐ KOMAST AFTUR Á LISTASÍÐU