LÝSING:
Fáar bækur hafa fylgt íslenskum börnum lengur en Vísnabókin; sígilt safn af kvæðum sem höfða til barna, prýdd bráðskemmtilegum teikningum. Bókin kom fyrst út árið 1946 en með tímanum var aukið við hana bæði vísum og teikningum. Í þessari nýju og gullfallegu útgáfu af bókinni er það efni nær allt með, í betri prentgæðum en áður hafa sést. |