LÝSING:
Gyða er afkastamikið skáld sem hefur þó aldrei komið út á prenti. En nú er hún með frábæra hugmynd að skáldsögu sem er byggð á skrautlegu fólki sem hún vann með í heimaþjónustu Kaupmannahafnar. Gyða ákveður að endurnýja kynnin við gömlu vinnufélagana en flækist fljótt í litríkan lygavef. Plan B er frumleg og listavel spunnin saga af ferðalagi sem tekur óvænta stefnu. |