LÝSING:
Á furðusagnahátíð í útlöndum ætla Vár og vinir hennar að sjá átrúnaðargoðið sitt, hinn dularfulla höfund bókaflokksins um Dísu. En hann veldur þeim vonbrigðum og hverfur svo sporlaust. Eftir það byrjar sögusvið bóka hans, með skrímslum sínum og furðum, að renna saman við raunveruleikann. Hér lýkur mögnuðum furðusagnaþríleik sem hófst á bókunum Drauga-Dísu og Galdra-Dísu. |