LÝSING:
Japan hefur um langa hríð verið lokað vegna ónefndra náttúruhamfara af mannavöldum. Eldra fólkið lifir lengi við hestaheilsu og annast um börnin sem eru viðkvæm og gömul fyrir aldur fram. Mumei býr með Yoshiro, fjörgömlum langafa sínum. Drengurinn er veikburða en laus við sjálfsvorkunn og bölsýni. Yoshiro einbeitir sér að því að annast Mumei, útvalinn sendiboða, þjakaður af samviskubiti vegna gjörða sinnar kynslóðar og afleiðinga þeirra. Áður hefur komið út á íslensku bókin Etýður í snjó eftir sama höfund. |