LÝSING:
Yfirgripsmikið verk um dýrafræði í tveimur bindum, prýtt fjölda mynda. Í senn fræðslurit og uppflettirit um undirstöður dýrafræðinnar, flokkun og einkenni dýra af öllum stærðum og gerðum. Dýraríkið, sem hér kemur út í fyrsta sinn, er metnaðarfyllsta ritverk Örnólfs Thorlacius, kennara og alþýðufræðara, og ber vitni ævilangrar ástríðu höfundar fyrir viðfangsefninu. |