Skráningar úr bókatíðindum 2020

 

Flokkur Titill Höfundur Útgáfa
Fræði og bækur almenns efnis Síðasta dagblaðið á vinstri vængnum
Reist á rústum Alþýðublaðsins, Tímans og Þjóðviljans
Elías Snæland Jónsson Bókaútgáfan Sæmundur

LÝSING:
Sögu Þjóðviljans, Tímans og Alþýðublaðsins lauk á tíunda áratug síðustu aldar. Dagur reis upp úr rústum þessara flokksblaða vinstrimanna sem óháð dagblað með hjartað vinstra megin við miðju. En eftir dugmikla baráttu fram yfir aldamótin varð Dagur engu að síður fjórða íslenska dagblaðið til að falla í valinn á níu árum. Höfundur sem var ritstjóri Dags 1997 til 2001 lýsir hér baráttu og langdregnu dauðastríði þessa síðasta dagblaðs á vinstri vængnum. Fróðleg og spennandi frásögn byggð á áður óbirtum heimildum.


SMELLIÐ Á BACK eða HÉR TIL AÐ KOMAST AFTUR Á LISTASÍÐU