LÝSING:
Þær eru margar og mistrúlegar staðreyndirnar í bókinni Vonarskarði. Sagan er römmuð inn af ótrúlegri ævintýraferð feðga sem gengu þvert yfir landið, frá Hellu og norður yfir Sprengisand, sá yngri rétt af barnsaldri. En þetta er ekki eina ferðin sem markaði líf Stolzenwald-fólksins. Stolzi eldri kom yfir hafið, steig á land í Eyjum og varð ástfanginn af fjöllunum og fólkinu á Íslandi. Hér segir líka af þeim sem heima sitja og fara jafnvel víðar en vildu. |