Skráningar úr bókatíðindum 2020

 

Flokkur Titill Höfundur Útgáfa
Skáldverk / Íslensk Síðasta barnið Guðmundur S. Brynjólfsson Bókaútgáfan Sæmundur

LÝSING:
Veturinn er harður og ofan á basl alþýðunnar bætist morðbrenna á Stokkseyri og skotárás á sýsluskrifstofunni á Eyrarbakka. Sem fyrr fléttast hlutskipti fátækra Sunnlendinga inn í líf sýslumannshjónanna sem þó eiga nóg með sitt. Studdur af Tryggva skrifara sínum þarf Eyjólfur að glíma við höfuðandstæðing sinn, óþokkann Kár Ketilsson sem bruggar sín viðbjóðslegu ráð. Embætti sýslumanns berst óvæntur liðsauki frá Englandi og ekki seinna vænna, því nú dregur að leikslokum.


SMELLIÐ Á BACK eða HÉR TIL AÐ KOMAST AFTUR Á LISTASÍÐU