Skráningar úr bókatíðindum 2020

 

Flokkur Titill Höfundur Útgáfa
Skáldverk / Íslensk Fyrir daga farsímans Böðvar Guðmundsson Bókaútgáfan Sæmundur

LÝSING:
Furðulegir helgidómar á altari kirkju sem var vígð 1882. Leiðsögumaður þýskra túrista sem þarf að þola að þeir hegða sér allt öðruvísi en honum líkar. Hernaðarsaga Íslendinga, ástir í braggahverfi og söngnám á Ítalíu. Þetta og margt fleira er efni nýrra smásagna Böðvars Guðmundssonar. Sögurnar eiga það sameiginlegt að þær gerast fyrir daga farsímans. Böðvar Guðmundsson hefur verið ástsælt skáld um áraraðir og meðal ann­ars hlotið Íslensku bókmenntaverðlaunin. Hér opnar hann nokkra glugga inn í gamlan heim, þar sem líf og reynsla karlmanna er í fyrirrúmi.


SMELLIÐ Á BACK eða HÉR TIL AÐ KOMAST AFTUR Á LISTASÍÐU