Skráningar úr bókatíðindum 2020

 

Flokkur Titill Höfundur Útgáfa
Skáldverk / þýdd Valdimarsdagur Kim Leine Bókaútgáfan Sæmundur

LÝSING:
Það er 15. júní árið 1938, dagur Valdimars sigursæla og danska fánans. Í leiguherbergi í miðborg Kaupmannahafnar vaknar ungur maður, kófsveittur eftir órólega nótt. Þetta er Erik. Hann hefur ákveðið að drepa mann. Við fylgjumst með ferðum unga mannsins þennan dag, aðdraganda þessarar örlagaríku ákvörðunar og loks afleiðingunum sem glæpurinn og refsingin hafa á líf hans. Í Valdimarsdegi segir verðlaunahöfundurinn Kim Leine sögu föðurafa síns. Jón Hallur Stefánsson þýddi.


SMELLIÐ Á BACK eða HÉR TIL AÐ KOMAST AFTUR Á LISTASÍÐU