Skráningar úr bókatíðindum 2020

 

Flokkur Titill Höfundur Útgáfa
Ljóð og leikrit Segðu það steininum Jóhanna Steingrímsdóttir Bókaútgáfan Sæmundur

LÝSING:
Úrval ljóða Jóhönnu Álfheiðar Steingrímsdóttur (1920-2002), gefið út á aldarafmæli skáldsins. Jóhanna sem var húsfreyja í Aðaldal sendi frá sér 14 bækur, stjórnaði útvarpsþáttum og stóð framarlega í baráttunni gegn virkjunaráformum í Laxá. Ljóðin sem hér birtast eru bundin og óbundin, og efnið af ýmsum toga. Ragnar Ingi Aðalsteinsson segir um kveðskap Jóhönnu: "Bragurinn leikur í höndum hennar, orðgnótt og nákvæmni í orðavali einkenna kvæðin, orðaröðin, sem er oft grundvallaratriði í hefðbundnum ljóðum, vitnar um smekkvísi og virðingu fyrir ljóðahefðinni."


SMELLIÐ Á BACK eða HÉR TIL AÐ KOMAST AFTUR Á LISTASÍÐU